Tuesday, April 21, 2009

Nú er þau hjón..


...og kyssast upp á títuprjón


Sunday, April 05, 2009

Viltu?kynslóðin.

Hvers vegna erum við alltaf að bjóða börnum val þegar þau hafa ekki vald né þroska til þess að velja? Við Heiðrún systir sátum hér í elhúsinu hennar mömmu um daginn og áttum gott spjall um allt og ekkert. Tal okkar barst að barnauppeldi. Mér er ansi hugleikið hvernig uppeldi þróaðist frá því að börn gerðu eins og fullorðið fólk sagði þeim að gera yfir í það að fullorðið fólk er sífellt að spyrja börn hvað þau vilji gera.

Ég kalla þessi börn Viltu?kynslóðina.

Hvers vegna eru foreldrar að spyrja börn, viltu koma að sofa? Viltu koma að borða? Viltu ekki taka til í herberginu þínu? Þetta eru allt athafnir sem börn hafa ekki val hvort þau taka þátt í, foreldrarnir hafa þegar ákveðið að það sé matartími en einhvernvegin þora ekki að segja komdu að borða heldur setja hlutina fram eins og barnið hafi val, sem það í raun hefur ekki.

Eru börn betur sett trúandi því að þau hafi val með allt? Er ekki bara hollt að sætta sig við frá unga aldri að sumt hefur maður ekki val um heldur þarf bara að gera?

Síðan þegar barnið hefur raunverulegt val í aðstæðum eins og hvort viltu fara í sund eða leikfimi? hefur það á tilfinningu að það skipti ekki máli hverju það svarar það sé hvort er bara stundum á það hlustað.

Smá uppeldispælingar frá eldhúsborði mömmu.....

Sunday, March 29, 2009

Elsku Pabbi minn

Elsku besti Pabbi,

Í dag er ár síðan við fengum þær hræðilegu fréttir að þú hefðir látist í slysi. Enn þann dag í dag skil ég ekki hvað gerðist og hvernig þetta gat gerst. Ég mun aldrei skilja það, ég verð bara að læra að lifa með því og sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt.

Í dag fórum við upp að slystað og áttum þar minningarstund, þar var kveikt á kertum og fólk lagði blóm á vörðuna. Fjallið var snóþakið eins og á slysdaginn fyrir ári síðan og himnarnir grétu þunnum tárum. Í kvöld mun fjallið hágráta enda spáð blindbyl.

Hvern einasta dag og hverja einustu mínútu finn ég til söknuðar og hugsa svo oft ,bara ef.... Í dag hef ég hugsað sérstaklega oft bara ef.... Það er sárt að sakna vegna þess hversu heitt maður hefur elskað og verið elskaður. Ég finn fyrir ást þinni alla daga og veit að mér ber skylda til þess að virða mátt kærleikans og lifa lífinu hvern einasta dag, einn dag í einu.

Ég óska þess að þú sért umvafin æðruleysi og kærleika á þeim stað sem þú ert núna. Við hittumst á ný þegar minn tími kemur.

Elska þig og sakna

Þín Sessa

Saturday, March 07, 2009

Hvernig er hægt að versla inn á svona verði?

Verðlagið á Íslandi er komið út í algjört rugl. Hvernig er hægt að ná endum saman með svona verðlag.

Ég keypti mér í gær fallegan peysukjól á www.ellos.se ætlaði síðan að sýna mínum ekta manni árangur þess að hann var í burtu í allt gærkveldi. Í spenningnum sló ég óvart inn www.ellos.is sem er íslenska útgáfan af þessum ágæta pöntunarlista. Ég er búin að vera í sjokki síðan. Verðið er bilun á Íslensku útgáfunni og svona allt í lagi á þeirri sænsku. Sami gallajakkinn kostar t.d. 4000 isl kr meira á Íslandi heldur en í Svíþjóð. Sama flíkin! Þetta er bilun.

Ég veit bara að ég ætti ekki gott með að kaupa mér gallajakka eða peysukjól á Íslandi í dag.

Wednesday, February 04, 2009

Játning...

... ég er ástfangin...

Wednesday, January 21, 2009

Bóka fund

Ég og dóttirin vorum að keyra heim frá ljósameðferðinni í morgun. Þá segir þessi elska mér að hún hafi komið með fullt af myndum og föndri heim úr leikskólanum í gær. Ég tjáði henni að ég hefði ekki haft tíma í að skoða þær þar sem ég hefði átt fund í gærkveldi.

Sú stutta var fljót að svara " nú þá verðum við bara að eiga saman fund í dag". Jebb hún var að bóka fund með mömmu sinni. "Á fundinum þurfum við að fara yfir teikningarnar og bókina um líkamann". Jebb sú stutta var líka búin að ákveða efnistök fundarins.

Ég er sem sagt að fara heimúr vinnu eftir nokkra tíma á mikilvægasta fund dagsins!

Friday, January 09, 2009

Stolt

Ég er stolt af ungunum tveim á heimilinu.

Stjúpsonur minn hann Nói er fluttur til okkar. Hann ætlar allavega að vera hjá okkur í vetur. Frábært að fá hann. Hann byrjaði í gær í nýjum skóla þar sem allt fer fram á sænsku. Við hjúin skiptumst á að fara með honum í skólann og sitjum aftast í bekknum að springa úr stolti. Hann er svo jákvæður og duglegur að gera sig skiljanlegan og taka þátt. Vonandi á honum eftir að líða jafn vel hér og okkur.

Svo er litla dýrið byrjað í ljósameðferðinni við Psoriasis. Við brunum því niður á spítala í ljósabekkinn þrisvar í viku fyrir leikskóla. Mamman er nú stundum ansi þreytt þessa morgna. Hún er svo dugleg í þessu sagðist meira að segja í morgun vera heppin að þessi tæki væru til sem gætu hjálpað henni. Dúllan mín!

Eigið góðan dag elskurnar mínar hvar sem þið eruð!

Stolta ungamamma